Velkomin til Iceland Refund
Iceland Refund er ungt, öflugt og sívaxandi fyrirtæki sem annast endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra ferðamanna. Aðildarverslanir eru í dag yfir sexhundruð talsins og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt síðan fyrirtækið tók til starfa í ágúst 2001. Aðalsmerki fyrirtækins er að veita öllum okkar viðskiptavinum persónulega þjónustu sérstaklega sniðna að þörfum hvers og eins.
Fjölgun ferðamanna hefur verið mikil undanfarið ár og allar spár benda til þess að svo verði áfram um ókomna framtíð. Er því m.a. spáð að fjöldi ferðamanna muni rúmlega þrefaldast til ársins 2020 en eins og ferðamennirnir eru margir eru kröfur þeirra og væntingar jafn ólíkar. Til að hagnast sem mest af viðskiptum við þennan markhóp er því mikilvægt að markaðssetja sig rétt og veita þá vöru og þjónustu sem fellur best að óskum viðskiptavinanna. Iceland Refund veitir jafnt þjónustu sem og ráðgjöf til að tryggja þinni verslun hámarks arðsemi.
Það er sannfæring okkar að með nánu samstarfi við Iceland Refund hvað varðar hugbúnaðarlausnir okkar, markaðsráðgjöf, þjálfun starfsmanna og öflugri persónulegri þjónustu sé verslun þinni tryggð hámarks afkastageta á ferðamannamarkaðinum.